Í gærnótt vöknuðum við Gunni við
þessi líka svaakalegu læti í veðrinu. Það var allt á kafi í
snjó, um það bil metershátt fyrir utan hurðina, og allri
starfsemi var lokað hjá Álverinu. Það hentaði mér sossum
ágætlega, fékk að hafa hann Gunna minn heima hjá mér bara að
kósýast allan daginn, ekkert smá næs!
Annars er ég búin að fá glænýja
tölvu, ekkert smá flott, Dell lappari, þvílík græja.. á frekar
erfitt með mig, finnst hún eiginlega of flott, en ég meina ég
kvarta sossum ekkert. Ég er bara gjörsamlega upsessed af henni, og
er á fullu að vesenast eitthvað í henni. Svona milli þess sem ég er
að vinna fyrir Rifka þá var ég að setja upp annað persónulegt blogg
fyrir mig. Slóðin að því er: http://katlahreidars.blogspot.com/
Er að prófa þetta blogspot dæmi, því
þetta er svo auðvelt að vera með þetta með picasa forritinu, sem ég
algjörlega elska núna! 
Picasa er myndaforrit sem þú
downloadar bara frá google, og þetta finnur allar myndir á tölvunni
þinni, og setur inn í þetta forrit, einfaldar myndvinnslu (svona
lítið innbyggt photoshop kerfi) sem og bara að skoða, blogga, senda
og gera allan andskotann við myndirnar þínar!
J
Jii, ég er búin að segja svo ógó
mörgum frá þessu forriti, mætti halda að þeta sponsoreraði mig!
Mohohoh
Jæja, þangað til næst, bið ég bara að
heilsa, og hlakka til að koma aftur til Danaveldis og knúsa þig
Hildur mín, Aðalgellan sem að sjálfsögðu RÚSTAÐI Profil prófinu
sínu! Til hamingju skvís! ***
Hils Katla***